Nýtt stjórnskipulag Sjúkrahússins á Akureyri

Markmið breytinganna er að fá fram markvissari og betri stjórnun, en breytingarnar tóku formlega gildi nú um áramótin.

 Í athugasemdum Ríkisendurskoðunar og á vinnufundum stjórnenda hefur komið fram að stjórnendur eru margir og sumar stjórnunareiningar mjög smáar. Þá hefur komið fram að hlutverk einstakra stjórnenda hefur verið óskýrt.Í nýju stjórnskipulagi verða 36 stjórnendur með þríþætta stjórnunarábyrgð. Með þríþættri stjórnunarábyrgð er átt við stjórnun starfsmanna, fags og reksturs.

Auk þessa hóps eru skilgreindir starfsmenn með fagumsjón. Áfram verða yfirlæknar yfir fagsviðum, fagstjórnendur á stoðdeildum og yfir klínískum verkefnum.

Á sjúkrahúsinu verða tvær sameiningar, sameining deilda á Kristnesi og sameining svæfinga- og gjörgæsludeilda. Að auki eru minni starfseiningar settar með stærri einingum undir einn forstöðumann.

Fyrir flesta verður lítil breyting á daglegum störfum. Sumir fá nýjan yfirmann og stjórnendur fá sumir aukin verkefni og verkefni annarra breytast.

 

karleskil@vikudagur.is

 

Nýjast