Nýtt fyrirkomulag hjá HSN ætlað að efla þjónustuna

Heilsugæslustöðin á Akureyri.
Heilsugæslustöðin á Akureyri.

Heilsugæslan á Akureyri hefur innleitt hjúkrunarstýrðar bókanir í símamóttöku heilsugæslunnar. Markmiðið er að efla og bæta þjónustu við skjólstæðinga þannig að þeir hljóti viðeigandi og tímanlega þjónustu á réttum stað og af réttum aðila.

Fyrirkomulag úrlausnar getur þýtt að í stað heimsóknar til læknis hitti skjólstæðingar annað heilbrigðisstarfsfólk eða að erindið verði leyst í gegnum síma. Í hjúkrunarstýrðum bókunum felst að skjólstæðingar hringja sem fyrr inn á símaskiptiborð HSN á Akureyri fyrir tíma og fara þá á úthringilista hjá hjúkrunarfræðingi.

Hjúkrunarfræðingur hringir þá til baka eins fljótt og auðið er, aflar upplýsinga um vandamálið og forgangsraðar skjólstæðingi í tíma hjá lækni eða kemur málinu í þann farveg að viðkomandi fái sem skjótasta úrlausn. Þetta þýðir að hefðbundnar tímabókanir munu breytast þannig að læknaritarar munu öllu jafna ekki lengur skrá niður tíma hjá lækni.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá HSN sem einnig bendir á að hjúkrunarmóttöka HSN er opin fyrir bráðatilfelli og veikindi alla virka daga frá kl. 8-10. Hjúkrunarfræðingar sinna einnig símaráðgjöf alla virka daga frá kl. 8-15. Vaktþjónusta lækna er opin frá kl. 14-18 alla virka daga og frá kl. 10-14 um helgar. Í neyðartilvikum skal ávallt hringt í 112.

 


Athugasemdir

Nýjast