Til stendur að reisa 2200 fermetra hús á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli ofan Akureyrar. Áætlað er að framkvæmdir hefjist árið 2015 en óvíst er hvenær húsið verður tekið í notkun. Nýji skíðaskálinn mun rísa fyrir neðan skíðalyftuna Fjarkann. Að sögn Guðmundar Karls Jónssonar, forstöðumanns í Hlíðarfjalli, mun kjarnastarfssemi skíðasvæðisins færast þangað niður eftir frá gamla skíðahótelinu. Það hús verður þó ekki rifið og einhverskonar starfsemi þar áfram.
Þetta verður breyting til batnaðar og mun efla skíðasvæðið enn frekar. Skíðahótelið er 50 ára gamalt og gegnir allt öðru hlutverki í dag en því var upprunalega ætlað. Auk þess er það alltof lítið og illa nýtt. Það er um 1200 fermetrar en aðeins 900 fermetrar nýttir. Þannig að aðstaðan inni við á svæðinu mun stækka til muna með nýju húsnæði, segir Guðmundur.
Stærra bílastæði
Samhliða þessu er áætlað að stækka bílastæðið á svæðinu verulega. Engin kostnaðaráætlun liggur fyrir vegna framkvæmdanna. Guðmundur Karl segist reikna með að Akureyrarbær sjái alfarið um fjármögnun verkefnisins en það er hluti af þriggja ára áætlun sveitarfélagsins.
Þá liggja einnig á teikniborðinu hugmyndir að tveimur nýjum lyftum, annarsvegar 1400 metra stólalyftu og hins vegar kláfferju, sem næðu upp á topp Hlíðarfjalls.
throstur@vikudagur.is