Hjörleifur Örn Jónsson skólastjóri Tónlistarskólans á Akureyri hefur verið ráðinn söngstjóri Karlakórs Akureyrar Geysis. Hann tekur við söngstjórastarfinu af Valmari Väljaots . Ég tel mikinn feng af því hafa fengið Hjörleif til samstarfs við okkur, hann er kraftmikill og vandvirkur og mjög áhugasamur um starf kórsins. Miðað við þær hugmyndir sem hann hefur sett fram varðandi næsta starfsár verður spennandi að vinna með honum. Skarð Valmars verður ekki auðvelt að fylla, en Hjörleifur er verðugur arftaki hans, segir Ágúst Ólafsson formaður KAG.