Nýr forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar HA
Arnar Þór Jóhannesson hefur verið ráðinn forstöðumaður RHA
Arnar er með meistarapróf í stjórnmálafræði frá Stokkhólmsháskóla og diplómu í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands. Undanfarin sex ár hefur Arnar starfað sem sérfræðingur hjá RHA þar sem hann hefur unnið að fjölbreyttum rannsóknum ásamt kennslu í stjórnmálafræði. Síðastliðin tvö ár hefur Arnar jafnframt verið starfsmaður jafnréttisráðs HA í hlutastarfi.
Arnar tekur við af Baldvini Valdemarssyni sem tók við stöðunni í eitt ár af Guðrúnu Rósu Þórsteinsdóttur sem hafði þá verið forstöðumaður í 13 ár.
„Ég hlakka til að takast á við verkefnið með því góða starfsfólki sem hér er. Markmið RHA er og hefur verið að efla rannsóknir við Háskólann á Akureyri og styrkja tengsl skólans við atvinnulífið og samfélagið. Rannsóknaráherslur okkar hafa t.a.m. verið á sviði samfélags- og byggðaþróunar, opinberrar stjórnsýslu og atvinnumála svo fátt eitt sé nefnt en í raun höfum við komið að ótrúlega fjölbreyttum rannsóknum á undanförnum árum um land allt. Við ætlum að halda áfram að sinna okkar nær-svæði vel en við eigum í góðu samstarfi við fjölmörg fyrirtæki og stofnanir á Norðurlandi sem reiða sig á okkar sérfræðiþekkingu og fagmennsku. Þá bind ég vonir við áframhaldandi gott samstarf við akademískt starfsfólk háskólans, meðal annars á sviði ráðgjafar og framkvæmd rannsókna,“ segir Arnar.
RHA - Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri er sjálfstæð eining innan Háskólans á Akureyri og hefur verið starfandi frá árinu 1992. Hlutverk RHA hefur frá upphafi verið að:
- Efla rannsóknir við HA
- Gefa út og kynna niðurstöður rannsókna við HA
- Styrkja tengsl HA við atvinnulífið
- Hafa samstarf við innlenda og erlenda rannsóknaaðila
- Veita upplýsingar og ráðgjöf
- Standa fyrir málstofum, fyrirlestrum og ráðstefnum
- Stunda þjónusturannsóknir
Athugasemdir