Nýr Björgunarbátur á leið til Húsavíkur

Samskonar bátur og Björgunarsveitin Garðar hefur fest kaup á.
Samskonar bátur og Björgunarsveitin Garðar hefur fest kaup á.

Birgir Mikaelsson formaður Björgunarsveitarinnar Garðars á Húsavík segir í samtali við Vikublaðið að nýr björgunarbátur sveitarinnar sé væntanlegur innan skamms. Báturinn er 11 metra yfirbyggður og smíðaður í Tyrklandi.  „Hann fer til Rotterdam 29 mars og fer þar í skip. Það er verið að smíða tvö svona báta en annar þeirra fer á Flateyri en hinn kemur hingað til Húsavíkur,“ segir Birgir.

Rétt fyrir áramót skrifuðu Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri f.h. Norðurþings og Birgir Mikaelsson, formaður f.h. Björgunarsveitarinnar Garðars undir samkomulag vegna kaupa á nýjum björgunarbát fyrir sveitina.

Að því tilefni var tilkynnt um nafngift á hinum nýja bát, Villi Páls. Það nafn var valið eftir nafnasamkeppni á dögunum og þykir vel til fundið þar sem Villi var einn af stofnendum Björgunarsveitarinnar og formaður hennar í 22 ár.

Markmið samkomulagsins er að tryggja viðbragð og getu Björgunarsveitarinnar Garðars til að sinna þeim verkefnum sem sveitinni eru ætluð hér á svæðinu og í næsta nágrenni. Mjög mikilvægt er að á svæðinu sé öflugt skip sem tryggir öryggi sæfarenda og getur sinnt viðbragðsútköllum fljótt og vel því umferð um Skjálfandaflóa hefur aukist gríðarlega undanfarin ár. Það er m.a. tilkomið vegna hvalaskoðunar, strandveiða, farþegaskipa og aukinna farmflutninga vegna Bakka og Eimskip.

Þá var undirritað samkomulag um styrktarsamning á milli Norðursiglingar og Garðars til þriggja ára í janúar sl. Þar sem Norðursigling styrkir sveitina um 4 milljónir.

„Það styttist nú vonandi eitthvað í það. Báturinn komi til Húsavíkur,“ segir Birgir. „Þetta er Rafnar Sjöfn bátur sem Norðurþing og svo hvalaskoðunarfyrirtækin og PCC styrkja okkur um. Þetta breytir öllu fyrir okkur, þetta er yfirbyggður 11 metra bátur.“

„Nú er búið að smíða bátinn og er hann á leið til Rotterdam þar sem hann fer í skip og verður fluttur með því til Íslands. Hann fer til Rotterdam 29. mars og fer þar í skip. Hann er smíðaður í Tyrklandi. En það voru smíðaðir tveir svona báta en annar þeirra fer á Flateyri en hinn kemur hingað til Húsavíkur,“ segir Birgir.

Landhelgisgæslan og Slysavarnafélagið Landsbjörg unnu greiningavinnu um öryggi sæfarenda á Skjálfanda og mátu úrbóta þörf hið fyrsta. Því er ráðist í kaup á nýjum björgunarbát sem er stórt verkefni upp á um 80 milljónir króna. Dómsmálaráðuneytið leggur til helming kaupverðs og því er hlutur Björgunarsveitarinnar um 40 milljónir króna. Björgunarsveitin leitaði til Norðurþings og tók byggðaráð erindið fyrir á fundi sínum þann 3. nóvember. Þar samþykkti ráðið að fela sveitarstjóra að ganga til samninga við Björgunarsveitina vegna kaupanna og að heildarkostnaður Norðurþings verði allt að 20 m.kr, greiðslur skipt í fjórar jafnar greiðslur á árunum 2022- 2025. Sveitarstjórn staðfesti fyrirkomulagið með afgreiðslu fjárhagsáætlunar þann 1. desember sl. Eftirstöðvar kaupverðs, um 20 milljónir verða fjármagnaðar af Björgunarsveitinni með frekari styrkjum frá fyrirtækjum og sjálfsaflafé.


Athugasemdir

Nýjast