Nýárstónleikar Garðars Thors Cortes í Hofi

Eftir vel heppanaða einsöngs tónleika í Grafarvogskirkju síðasta laugardag heldur Garðar Thór Cortes norður á Akureyri til tónleika halds. Það verða fyrstu einsöngs tónleikar Garðars á Akureyri.

"Það er mikil tilhlökkun, ég hef sungið í Menningarhúsinu Hofi áður en aldrei haldið eigin tónleika, hvorki í Hofi né Akureyri,"  segir Garðar Thor.

Sérstakir gestir Garðars verða faðir hans Garðar Cortes og Valgerður Guðnadóttir söngkona.

Tónlistarstjórar eru þeir Friðrik Karlsson og Óskar Einarson. Friðrik og Óskar útsettu og stjórnuðu einmitt upptökum af plötunni Cortes sem var einhver mest selda plata allra tíma á Íslandi og hlaut tilnefningu til Bresku tónlistarverðlaunanna árið 2008. "Það var frábært að vinna aftur með þeim og svo er strengja kvintettinn alveg frábær. Roland, Richard, Magdalena, Spignew og Sigurður, þetta er sannarlega alþjóðlega strengjasveit."

Nýjast