Ný bók um sjóhernaðinn í stríðinu

 Út er komið nýtt stórvirki eftir Magnús Þór Hafsteinsson. Hann sendi í fyrra frá sér bókina Dauðinn í Dumbshafi – Íshafsskipalestirnar frá Hvalfirði og sjóhernaðurí Norður-Íshafi 1940-1942. Nýja bókin er stjálfstætt framhald hennar og ber heitið Návígi á norðurslóðum – Íshafsskipalestirnar og ófriðurinn 1942-1945. Þar er meðal annars sagt er frá herskipum Breta sem lágu á Pollinum við Akureyri á Þorláksmessukvöld árið 1943, en einmitt þar undirbjuggu Bretar hrikalegustu sjóorrustu sem háð hefur verið í norðurhöfum þegar þýska orrustuskipinu Scharnhorst var sökkt við Norðurhöfða í Barentshafi.

 

Adolf Hitler leit svo á að norðurslóðir væru örlagasvæði seinni heimsstyrjaldarinnar. Hann óttaðist innrás í Noreg frá Íslandi. Stórveldin léku flókna refskák þar sem saman fóru njósnir, blekkingar og blóðugur hernaður. Litlu munaði að Churchill,Rooseveltog Stalín hittust til fyrsta leiðtogafundar síns í Hvalfirði, segir í kynningu.

Nýjast