Hvalaskoðunarfyrirtækið Norðursigling á Húsavík hefur ákveðið að gera út eikarbátinn Náttfara til hvalaskoðunar frá Akureyri eitthvað fram á veturinn. Fyrsta ferðin var farin í dag frá Torfunesbryggju. Um borð voru ellefu farþegar og tveggja manna áhöfn. Mikið sást af hval og voru farþegarnir mjög ánægðir með ferðina.
Meðfylgjandi mynd tók Þorgeir Baldursson í túrnum í dag. Á heimasíðu Þorgeirs, www.123.is/thorgeirbald að finna fleiri myndir úr túrnum.