Norðurorka styrkir Hof

Ingibjörg Ösk Stefánsdóttir framkvæmdastjóri Hofs og Helgi Jóhannesson forstjóri Norðurorku.
Ingibjörg Ösk Stefánsdóttir framkvæmdastjóri Hofs og Helgi Jóhannesson forstjóri Norðurorku.

 Norðurorka  og Menningarfélagið Hof hafa undirritað samstarfssamning , sem gildir út næsta ár. Helgi Jóhannesson forstjóri Norðurorku segir það hafa verið ánægjulegt að fylgjast með starfsemi Hofs á þessum tveimur árum sem eru liðin frá opnun hússins.

 

„Á sama hátt og við hjá Norðurorku leggjum áherslu á gæði og hagkvæma þjónustu hefur starfsfólkið í Hofi sýnt fram á að þar er unnið metnaðarfullt starf sem skilar árangri og það er okkur mikill heiður að fá að taka þátt í þessu starfi.“ Í samningnum fellst að Norðurorka veitir Hofi fjárstyrk og skal honum einkum varið til þess að styðja við opna viðburði í Hofi sem gestir hafa aðgang að án endurgjalds, segir í tilkynningu

Nýjast