Norðurljósin heilla

Gistinóttum á norðlenskum hótelum fjölgaði í október um 62 %, þær voru 9.600 samanborið við 5.900 í sama mánuði í fyrra. Bandarískir ferðamenn hafa verið áberandi á Akureyri, meirihluti þeirra kemur til landsins til að skoða norðurljósin.

Eftir að Icelandair opnaði hótel á Akureyri var ráðist í markaðsherferð í Bandaríkjunum, þar sem norðurljósin voru auglýst sérstaklega.  Sú herferð er nú að skila árangri, því hótelið var mjög vel bókað í október, auk þess sem önnur hótel á svæðinu njóta góðs af markaðssetningunni.

Ýmsar greinar atvinnulífsins njóta sömuleiðis góðs af fjölgun ferðamanna á þessum árstíma, svo sem verslun og þjónusta.

Gistinóttum á hótelum fjölgaði í öllum landshlutum í október. Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði gistinóttum um 17 %. Aukningin var langmest á Norðurlandi, 62 % eins og fyrr segir.

karleskil@vikudagur.is

 

Nýjast