NordNatur styrkir námskeið á Eyjafjarðarsvæðinu

Háskólinn á Akureyri og Turku Universety of applied sciences í Finnlandi stóðu í ágúst fyrir námskeiði í sjávar- og vatnsvistafræði. Námskeiðið sem haldið var í þriðja sinn er sérstakt að því að því leyti að það fer fram bæði á Íslandi og Finnlandi.Markmið námskeiðsins var að þjálfa nemendur í sýnatökum, söfnun og greiningu á lífverum úr sjó og vatni og læra um það helst varðandi þessar lífverur.

Íslenski hluti námskeiðsins er mögulegur vegna einstaklega góðra aðstæðna í Eyjafirði og nágrenni. Fyrirlestrar voru haldnir á Síldarminjasafninu á Siglufirði, við Háskólann á Akureyri, á Þekkingarsetri Þingeyinga á Húsavík og í Ytri Vík þar sem einnig var gist.

Farið var í nokkrar sjóferðir frá Hauganesi, fiskar veiddir á sjóstöng, merktir og sleppt, og einnig var farið í hvalaskoðun frá Húsavík. Þá tók hópurinn þátt í Fiskideginum mikla á Dalvík. Námskeiðið var sex ECTS og var styrkt af NordNatur.

Nýjast