Tveir frá Norðlenska í landsliði kjötiðnaðarmanna

Landslið kjötiðnaðarmanna.
Landslið kjötiðnaðarmanna.

Landslið kjötiðnaðarmanna hélt til Lisburn í Norður Írlandi í byrjun október til að etja kappi í kjötiðn við landslið Írlands sem eru ríkjandi heimsmeistarar í greininni. Norðlenska átti tvo starfsmenn í þessari ferð. Róbert Ragnar Skarphéðinsson kjötiðnaðarmeistari og verkstjóri á Húsavík var liðsmaður í landsliðinu og Stefán Einar Jónsson kjötiðnaðarmeistari og verkstjóri á Akureyri fór sem dómari.

Á fyrri keppnisdegi var keppt í einstaklingskeppni og svo í tveggja manna keppni. Á seinni keppnisdegi var keppni á milli Íslands og Írlands. Íslensku landsliðsmönnunum gekk vel miðað við að vera keppa í fyrsta skipti og var ekki mikill munur á þó Írarnir hefðu betur að þessu sinni. Enn mjórri var munurinn í liðakeppninni.

Þetta kemur fram á vef Norðlenska og þar segir að Stefán Einar hafi í kjölfar keppninnar verið valinn sem Deputy Chief Expert fyrir Euroskils 2020.


Athugasemdir

Nýjast