Um 60 % nemenda Verkmenntaskólans á Akureyri búa á Akureyri. Nemendur á haustönn eru samtals 1.313. Karlar eru 749 , en konur 564. Tuttugu nemendur skólans eru búsettir á Vestfjörðum og 75 eru búsettir á Austfjörðum. Þetta kemur fram í tölulegum upplýsingum sem teknar hafa verið saman til að gefa mynd af fjölbreytni nemenda í VMA.
Póstnúmer fjöldi nemenda
101-299 Höfuðborgarsv. og Reykjanes 30
300-399 Vesturland 11
400-499 Vestfirðir 20
500-599 NV, frá Hólmavík-Siglufjarðar 88
600 Akureyri, utan Glerár 407
603 Akureyri, norðan Glerár 362
601, nágr. Akureyrar 113
580,610-630 Aðrir staðir í Eyjaf. Og Siglufjörður 93
640-699 Þing.sýslur 98
700-799 Austurland 75
800 Suðurland og útlönd 16