Nefndarlaun hjá Akureyrarbæ til skoðunar

Ráðhúsið á Akureyri Mynd/Hörður Geirsson
Ráðhúsið á Akureyri Mynd/Hörður Geirsson

Halla Björk Reynisdóttir formaður bæjarráðs Akureyrarbæjar hefur lagt fram til umræðu breytingu á nefndarlaunum. Samkvæmt reglum er miðað við að laun bæjarfulltrúa og nefndarmanna taki breytingum í upphafi hvers árs. Launin voru fryst í ársbyrjun 2009, en þá voru öll laun kjörinna fulltrúa lækkuð um 10 af hundraði.

Bæjarfulltrúar kanna málið þessa dagana. Í dag er forseti bæjarstjórnar með 186.251 krónur á mánuði í föst laun og er fundarseta innifalin. Varaforseti er með 126.988 krónur á mánuði og aðrir bæjarfulltrúar 110.057 krónur. Föst laun formanns bæjarráðs eru 211.645 krónur á mánuði og er fundarseta innifalin.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast