Bæjarráð Akureyrar hefur ákveðið að draga til baka 10 % lækkun nefndarlauna, sem tók gildi í upphafi ársins 2009. Breytingin tekur gildi um áramótin. Jafnframt hefur ráðið ákveðið að nefndarlaun taki breytingum miðað við almennar hækkanir í kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðsemjenda þeirra.
Í dag er forseti bæjarstjórnar með 186.251 krónur á mánuði í föst laun og er fundarseta innifalin. Varaforseti er með 126.988 krónur á mánuði og aðrir bæjarfulltrúar 110.057 krónur. Föst laun formanns bæjarráðs eru 211.645 krónur á mánuði og er fundarseta innifalin. karleskil@vikudagur.is