Nautakjöt beint frá býli

Einar Örn Aðalsteinsson
Einar Örn Aðalsteinsson

„Þetta hefur átt sér nokkuð langan aðdraganda. Við feðgarnir fórum í upphafi á Vaxtarsprotanámskeið hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands, þar sem meðal annars var unnin viðskiptaáætlun fyrir þetta verkefni. Gömlu mjólkurhúsi var breytt í fyrsta flokks kjötvinnslu, sem uppfyllir allar þær kröfur sem gerðar eru til slíkrar starfsemi og í dag er staðan sú að við höfum leyfi til að selja afurðir frá búinu til heimila, mötuneyta og veitingataða. “ segir Einar Örn Aðalsteinsson framkvæmdastjóri kjötvinnslunnar í Garði í Eyjafjarðarsveit.

Sala á nautakjöti frá Garði hófst í haust og hafa viðtökurnar verið góðar.

 „Neytendur virðast vilja versla beint við bóndann og fá þannig tryggingu fyrir uppruna og gæðum vörunar.  Bændurnir hérna eru menntaðir búfræðingar og við kjötvinnsluna starfar faglærður kjötiðnaðarmaður.“

Í vefversluninni nautakjot.is er hægt að panta kjötið, einnig er hægt að kaupa kjöt í Kaffi kú, sem er kaffihús yfir fjósinu í Garði.  Kaffihúsið er opið allar helgar, annars eftir samkomulagi.

„ Við erum með fjóra mismunandi kjötpakka, sem hafa mælst vel fyrir. Svo er líka hægt að panta hjá okkur aðrar útfærslur, við leggjum okkur fram um að sinna öllum óskum viðskitavinanna. Við seljum okkar vörur um land allt og lítum svo á að landið sé eitt markaðssvæði, kjötið er sent með landflutningum án kostnaðar fyrir viðskiptavini og þá sendum við frítt heim á Akureyri,“

 segir Einar Örn Aðalsteinsson framkvæmdastjóri kjötvinnslunnar í Garði í Eyjafjarðarsveit.

karleskil@vikudagur.is

 

Nýjast