Tannheilsa barna á Íslandi er slæm miðað við aðrar Norðurlandaþjóðir. Unglingar á aldrinum 13-18 ára drekka alltof mikið af súrum drykkjum og á nammidögum þarf að stilla sykurneyslunni í hóf. Vikudagur settist niður með Mörthu Hermannsdóttur tannlækni á Akureyri.
Við Íslendingar erum gjarnir á að bera okkur saman við hinar Norðurlandaþjóðirnar og börn hér á landi koma illa út úr samanburðinum varðandi tannheilsu. Það sem við í tannlæknastéttinni erum mest ósátt við, og skýrir að hluta til þennan mun, er að í löndum eins og Noregi, Svíþjóð og Danmörku er tannlæknaþjónustan að kostnaðarlausu til átján ára aldurs. Hér á landi er fólk hins vegar að fá um 30-40 prósent endurgreitt af sínum reikningum. Tryggingarstofnun hefur lítið sem ekkert hækkað taxtann sinn í mörg ár, en á sama tíma hefur verð hjá okkur tannlæknum hækkað í takt við vísitöluna, segir Martha.
Lendir í niðurskurði
Lítil endurgreiðsla á tannlæknaþjónustu veldur því að margir foreldrar fara ekki með börnin í eftirlit. Martha segir það einnig áhyggjuefni að það er alltaf einhver hópur af fólki sem virðist ekki nýta sér fría þjónustu þegar hún er í boði.
Það kostar sitt að fara til tannlæknis og það eru margir sem hafa ekki mikið á milli handanna. Fólk er að spara og þetta er því miður oft einn af þeim hlutum sem lendir í niðurskurði. Það eru samt aldrei allir sem koma með börnin sín til tannlæknis, sama hvort að það er frítt eða ekki. Það hefur sýnt sig að það er alltaf um 20 % barna sem koma ekki til tannlæknis."
Ítarlega er rætt við Mörthu í prentútgáfu Vikudags.