Náttúran er víðar en fyrir sunnan

Kristinn J. Albertsson
Kristinn J. Albertsson

Náttúrufræðistofnun Íslands sinnir ráðgjöf um landnotkun og nýtingu náttúruauðlinda sem og fræðslu til skóla og almennings. Segja má að starfsstöð stofnunarinnar á Akureyri sé afsprengi Náttúrugripasafnsins á Akureyri og síðar Náttúrustofnunar Norðurlands. Kristinn J. Albertsson forstöðumaður segir að starfsmenn í vetur veri um tíu talsins.

 

„Hérna er unnið að ýmsum rannsóknum og vöktun á náttúru landsins, en segja má að stafsmenn hverju sinni móti viðfangsefnin. Grasafræði er stór þáttur í starfseminni, háplöntufræðingur hefur að vísu ekki verið starfandi hérna fyrir norðan um nokkurt skeið, en von er á pólskum sérfræðingi til okkar innan skamms. Hérna er miðstöð sveppafræðinnar og fléttufræðin er líka nokkuð fyrirferðamikil í starfseminni. Þá starfa hér jarðfræðingar sem meðal annars rannsaka jarðlög, skriðuföll og flóð. Þannig að starfsemin er nokkuð fjölþætt.“

Kristinn segir að starfsstöðin á Akureyri gegni mikilvægu hlutverki, ekki sé nóg að vera með eina stóra stofnun á höfuðborgarsvæðinu.

„Já, já, náttúran er víðar en bara fyrir sunnan og hana þarf auðvitað að rannsaka. Á vegum stofnunarinnar er nú unnið að vistfræðilegri kortagerð af láglendi Íslands, þetta er stórt verkefni. Annað viðamikið verkefni sem ég vil sérstaklega nefna er á sviði ofanflóða. Náttúrufræðistofnun sér um að safna saman upplýsingum um allar skriður og ofanflóð, en Veðurstofa Íslands sinnir rannsóknum á snjóflóðum. Markmiðið er að gera heildstæðan gagnagrunn um þessa vitneskju sem þessar tvær stofnanir afla.“

 karleskil@vikudagur.is

Nýjast