Þrátt fyrir hálku og snjóþunga á Akureyri er langt frá því að hjólreiðamenn hafi lagt hjólunum yfir veturinn. Nagladekk á reiðhjól rjúka út og fólk hjólar allt árið. Það er tvöföld aukning í sölu á nagladekkjum hjá okkur á milli ára. Fólk virðist vera duglegt við að hjóla í vetrarfærðinni, segir Viðar Garðarsson hjá Skíðaþjónustunni á Akureyri.
Eins og á hjólbarðaverkstæðum að þá skipti ég yfir á nagladekk á haustin og sumardekk á vorin, segir Viðar léttur í bragði. Það munar ótrúlega miklu fyrir reiðhjólafólk að vera á nöglum í hálkunni. Þú finnur miklu meiri mun á hjóli en á bíl.
Gömul skíði vinsælust
Viðar segir mikið að gera hjá sér um þessar mundir en jafnan er mesti háannatíminn í kringum opnun á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli. Það fór allt á fullt þegar að það byrjaði að snjóa almennilega. Fólk er að kaupa sér allskyns skíðavörur og láta lagfæra ýmsan búnað. Það er mest spurt um gömul skíði en svo virðist sem fólk haldi að sér höndum.
Einnig er alltaf góð sala á gönguskíðum, ég held að önnur hver kona í
bænum sé búin að fá sér gönguskíði.
Strákar á snjóbrettum
Strákar á aldrinum 8-10 ára eru nánast allir á brettum. Þeir Halldór og Eiríkur Helgasynir snjóbrettakappar eru búnir að kveikja upp í þeim áhugann, segir Viðar.
throstur@vikudagur.is