Þór tekur á móti ÍR í 1. deild karla í knattspyrnu í dag en liðin eigast við á Þórsvelli kl. 16:00. Þór er á toppi deildarinnar ásamt Fjölni með tólf stig, en Þórsarar hafa leikið einum leik minna og geta náð þriggja stiga forystu á toppnum með sigri í dag. ÍR hefur níu stig í fimmta sæti og getur jafnað Þór og Fjölni að stigum takist liðinu að vinna.