Fjárskortur varð þess valdandi að myndun blaða og tímarita var hætt um síðustu áramót en unnið hefur verið að þessu verkefni hjá Amtsbókasafninu á Akureyri í samvinnu við Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn frá árinu 2007. Myndunarstöðin hefur verið tekin niður og send suður á Landsbókasafn.
Þegar mest var voru myndaðar allt að 30 þúsund síður í hverjum mánuði og þær síðan birtar á vefnum www. timarit.is.
Tveir starfsmenn hafa unnið við skönnunina. Safnið lagði í töluverðan stofnkostnað vegna verkefnisins á sínum tíma auk þess að leggja til húsnæði undir starfsemina og greiða laun starfsfólks, en það var gert samkvæmt samningi við Landsbókasafnið sem greiddi kostnað við verkefnið og á m.a. tækin sem notuð eru.