Mörg tæki orðin úrelt og þörf á endurnýjun

Sjúkrahúsið á Akureyri. Mynd: Hörður Geirsson.
Sjúkrahúsið á Akureyri. Mynd: Hörður Geirsson.

„Þumalfingursreglan segir að við getum tvöfaldað þessa tölu fyrir lok árs en við stefnum að því að hallinn á árinu verði ekki meiri en 40 milljónir króna,” segir Bjarni Jónasson forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri. Uppgjör fyrstu sex mánuði ársins hjá sjúkrahúsinu liggur nú fyrir og er kostnaður um 26 milljónir umfram fjárveitingu eða 1,2 %. Bjarni segir brýnt að fá meira fjármagn í reksturinn til þess að sinna sömu þjónustu áfram. Þá eru mörg tæki á sjúkrahúsinu komin vel til ára sinna og þarf að ráðast í endurnýjun á þeim.

Bjarni segir stöðuna á Akureyri í tækjamálum sambærilega við þá sem er á Landspítalanum í Reykjavík. „Sum staðar höfum við náð að halda í horfinu þar sem við höfum notið góðs af Gjafasjóði sem hefur fjármagnað mjög mikið af þeim tækjakaupum hingað undanfarin ár. En það er komið að því að það þurfi að fara að endurnýja töluvert að tækjum. Það eru helst röntgentæki og ýmis smærri tæki sem eru komin fram yfir tímann.” Hann segir misjafnt hvað tækin eru kominn langt fram yfir æskilegan notendatíma en sum þeirra séu orðin mjög gömul. Nánar er fjallað um málið í prentútgáfu Vikudags sem kom út í gær.

Nýjast