Misjafnar tekjur bæjarfulltrúa

Bæjarfulltrúarnir á Akureyri eru með mjög misjöfn laun en starf þeirra sem bæjarfulltrúar er hlutastarf þannig að laun þeirra ráðast að mestu af aðalstarfi þeirra. Fjórir bæjarfulltrúar eru með meira en milljón í laun á mánuði og launahæsti bæjarfulltrúinn er með um það bil fjórföld laun þess sem lægstar tekjurnar hefur. Tekjur bæjarfulltrúanna eru eftirfarandi samkvæmt álagningarskrá sem lögð var fram í vikunni:

Andrea Hjálmsdóttir, Vinstri grænum, 558 þúsund á mánuði; Geir Kristinn Aðalsteinsson, Lista fólksins, 761 þúsund á mánuði; Guðmundur B. Guðmundsson,  Framsókn, 1.130 þúsund á mánuði;  Halla Björk Reynisdóttir, Lista fólksins, 1.361 þúsund á mánuði;  Hermann Jón Tómasson, Samfylkingu, 830 þúsund á mánuði; Hlín Bolladóttir, Lista fólksins, 436 þúsund á mánuði;  Inda Björk Gunnarsdóttir, Lista fólksins, 544 þúsund á mánuði;  Oddur Helgi Halldórsson, Lista fólksins, 724 þúsund á mánuði; Ólafur Jónsson, Sjálfstæðisflokki, 1.011 þúsund á mánuði; Sigurður Guðmundsson, Bæjarlistanum, 1,533 þúsund á mánuði; Tryggvi Þór Gunnarsson,  Lista fólksins, 387 þúsund á mánuði og Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri, 1.030 þúsund á mánuði.

Nýjast