Minntust fjölgunar kvenna í bæjarstjórn

Frétt úr degi eftir kosningarnar 1982
Frétt úr degi eftir kosningarnar 1982

Á bæjarstjórnarfundi í gær, kvenréttindadaginn 19. júní, minntist Hlín Bolladóttir bæjarfulltrúi  þess að nú eru 30 ár frá því konur urðu í fyrsta sinn fleiri en ein í bæjarstjórn Akureyrar. Þetta gerðist eftir stórsigur Kvennaframboðsins í kosningunum 1982.
Af því tilefni hafði þeim þremur konum sem sátu sem kjörnir fulltrúar í bæjarstjórn fyrir 30 árum boðið að sitja fund bæjarstjórnar. Þetta voru þær Sigfríður Þorsteinsdóttir og Úlfhildur Rögnvaldsdóttir sem mættu til fundarins, en auk þeirra sat Valgerður H. Bjarnadóttir í bæjarstjórn á þeim tíma.

Nýjast