Minnst borgað á Dalvík en mest á Grenivík

Nýlega gerði Eining-Iðja könnun varðandi laun í vinnuskólum á félagssvæðinu. Notast var við upplýsingar af heimasíðum sveitarfélaganna, en þar sem slíkar upplýsingar lágu ekki fyrir var haft samband við viðkomandi sveitarfélag. Best er borgað í Grýtubakkahreppi en lægst á Dalvík. (Ath. fréttin hefur verið uppfærð 26/6 og tölur leiðréttar).
Ekki var skoðað hve marga tíma á dag unglingarnir geta unnið, einungis sá kauptaxti sem notaður er. Í töflunni hér fyrir neðan er 10,17% orlof innifalið í taxta og er sveitarfélögum raðað eftir því hverjir borga best og er þá miðað við aldursflokkinn 16 ára.
 
Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju, segir að sveitarfélög ákveði sjálf laun fyrir þessi ungmenni, en skv. samningi við Samband íslenskra sveitarfélaga falla vinnuskólar sveitarfélaga ekki undir kjarasamninga stéttarfélaga, enda sé um að ræða sambland af vinnu og námi og að ungmennin séu 16 ára og yngri. Að öðru leyti vísast í til 10. kafla laga nr. 46/198 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum og reglugerðar 426/1999 um vinnu barna og unglinga. „Það eru ekki til samræmdir taxtar fyrir þessa vinnu. Vinnuskóli og unglingavinna er ekki það sama þótt vinnuskólaheitið sé notað í flestum sveitarfélögum. Til að hægt sé að kalla vinnuna vinnuskóla þarf hluti starfseminnar að vera í formi fræðslu. Í litlu sveitarfélögunum er yfirleitt um hefðbundnari vinnu að ræða sem kann að skýra launamuninn."
 

Grýtubakkahreppur

Greitt er 20% álag fyrir slátt m. orfi.

 

Dagv.

 

Yfirv.

 

Mán.laun

 

16 ára

805,07

1.449,14

139.543

15 ára

529,03

952,27

91.697

14 ára

458,49

825,31

79.471

 

 

 

 

 

Hörgársveit

 

 

 

 

16 ára

650

 

 

 

15 ára

520

 

 

 

14 ára

470

 

 

 

 

 

 

 

 

Fjallabyggð

 

 

 

 

16 ára

827,66

1.397,61

 

 

15 ára

551,78

931,74

 

 

14 ára

482,80

815,27

 

 

 

 

 

 

 

Dalvík

 

 

 

 

16 ára

577

 

 

 

15 ára

481

 

 

 

14 ára

417

 

 

 

 

 

 

 

 

Svalbarðsstrandarhreppur

 

 

 

 

16 ára

626,05

 

 

 

15 ára

500,84

 

 

 

14 ára

438,24

 

 

 

 

 

 

 

 

Akureyri

 

 

 

 

16 ára

590,51

 

 

 

15 ára

448,39

 

 

 

14 ára

392,21

 

 

 

 

 

 

 

 

Eyjafjarðarsveit

 

 

 

 

16 ára

623,56

 

 

 

15 ára

430

 

 

 

14 ára

380

 

 

 

Nýjast