Umferð um Öxnadal drógst saman um 10% í júní sl. miðað við sama mánuð í fyrra, sem er mesti samdráttur það sem af er ári á þessum stað. Umferðin í Öxnadal hefur dregist saman í öllum mánuðum það sem af er ári, ef frá er talinn maímánuður en þar varð tæplega 9% auking á milli ára. Horfur eru til þess að umferð dragist saman um 5-6% á þessum stað nú í ár, að sögn Friðleifs Inga Brynjarssonar verkefnastjóra umferðardeildar Vegagerðarinnar á Akureyri.
Umferð í júní í ár dróst minna saman í Kræklingahlið eða um tæp 4% miðað við sama mánuð í fyrra en umferðin á þessum stað hefur einnig dregist saman í öllum mánuðum nema mars, þá jókst hún um 7%. Mest dróst umferðin saman í apríl eða um 10%. Horfur eru til þess að umferðin dragist saman um 3-4% í Kræklingahlíð árið 2012, miðað við árið 2011.
Friðleifur áætlar að umferð muni dragast saman um 3% á Norðurlandi öllu þetta árið miðað við árið 2011, þegar 6 fyrstu mánuðir ársins eru liðnir. En mikið veltur þó á því hversu mikil umferðin verður á næstu tveimur mánuðum.
Vegagerðin birtir mánaðarlega tölur um umferð frá 16 lykilteljurnum á Hringveginum, m.a. í Öxnadal og Kræklingahlíð. Einnig flytjum við vikulega fréttir af umferð út frá höfuðborgarsvæðinu en sú umferð hefur mikil áhrif út um allt land. Teikn eru þó á lofti um að eftir því sem lengra dregur frá höfuðborgarsvæðinu þeim mun meiri samdráttur verður. Samdrátturinn er þó ýfið meiri norður fyrir en í austurátt út frá höfuðborgarsvæðinu, segir Friðleifur.