Mikilvægt að rækta bæði líkama og sál

Jóna Lovísa.
Jóna Lovísa.

Jóna Lovísa Jónsdóttir prestur og heildrænn þjálfari á Akureyri ræktar líkamann jafnt sem sálina. Auk þess að sinna preststörfum býður hún upp á ráðgjöf varðandi líkamsþjálfun, næringu og persónulega sjálfsskoðun. Vikudagur settist niður með Jónu Lovísu og forvitnaðist um heildræna þjálfun og trúarmenninguna á Akureyri.

„Ég vildi bjóða upp á þjónustu sem væri víðtækari en hefðbundin einkaþjálfun. Heildræn þjálfun byggist á þeirri hugmyndafræði að nauðsynlegt sé að rækta bæði líkama og sál til þess að ná settum markmiðum. Það skiptir gríðarlegu máli að unnið sé í að bæta andlega heilsu samhliða þeirri líkamlegu. Ef þú vilt t.d. ná góðum árangri í íþróttum er nauðsynlegt að rækta hugann samhliða íþróttaæfingum. Það er þannig sem þú nærð árangri. Meðal þess sem ég býð upp á er fjarþjálfun.

Hver og einn fær sína heimasíðu þar sem ég set inn æfingakerfi, fræðslu, uppskriftir og fleira sem skiptir máli. Ég hitti svo skjólstæðingana mína reglulega, annað hvort í Orkulundi eða á Skype. Þessir tímar fara í að ræða gang mála, bæði hvað varðar æfingar og annað sem fólk vill deila með mér. Flest eigum við okkur sögu um eitthvað óunnið og það getur truflað okkar í því að ná settum markmiðum. Þegar kemur að líkamsrækt geta markmið okkar verið afar mismunandi.”

throstur@vikudagur.is

Ítarlegra viðtal við Jónu Lovísu má finna í prentútgáfu Vikudags.

Nýjast