Mikill vindur og snjókoma í nótt og á morgun

Nú fer veður aftur versnandi um landið norðaustanvert, og má þar gera ráð fyrir miklum vindi, 18-23 m/s og snjókomu og skafrenningi í alla nótt og á morgun. Ferðaveður og færð verða því ákaflega slæm.

Um landið norðvestanvert verður vindur áfram mikill, en heldur dregur úr ofankomu í kvöld. Skyggni verður þó áfram slæmt og færð léleg vegna skafrennings og vinds.

Um landið sunnanvert hvessir einnig og má búast við NA 18-23 m/s. Mjög snarpar vindviður verða við fjöll s.s. á Kjalarnesi, í Hamarsfirði og undir Eyjafjöllum og Vatnajökli má búast við meðalvindi jafnvel um 20-25 m/s og vindhviðum upp undir 40 m/s, segir í ábendingu frá veðurfræðingi á vef Vegagerðarinnar í kvöld.

Nýjast