Mikill samdráttur umferðar fyrir norðan

Umferð á Hringveginum á Norðurlandi reyndist vera 4.1 % minni  á nýliðnu ári, miðað við árið á undan. Hvergi á  Hringveginum  var samdrátturinn eins mikill, en á landinu öllu dróst umferð lítillega saman, eða um 0.4%.

Vegagerðin hefur tekið saman þróunina á Norðurlandi fyrir Vikudag á nokkrum völdum stöðum síðustu þrjú árin, þar sem teljarar eru staðsettir.

Mestur samdráttur hefur orðið á Hringveginum í Öxnadal, eða 16.7 %. Hins vegar hefur umferð aukist á Hringveginum á Mývatnsöræfum um 4.8%, en um þann talningarstað fara fæstir bílar í samanburði við hina lykilstaðina.

Umferðargreinir er staðsettur í Kræklingahlíð, rétt utan Akureyrar. Á síðustu þremur árum hefur umferðin þar dregist saman um 8.5 %.

Umferð um Víkurskarð hefur dregist verulega saman, eða um 12 %, samkvæmt útreikningum Vegagerðarinnar. Samdrátturinn er 6.2 % á Ólafsfjarðarvegi, en umferð á Norðausturvegi, rétt sunnan Húsavíkur hefur aukist um 3.6 % á síðustu þremur árum.

Friðleifur Ingi Brynjarsson verkefnastjóri hjá Vegagerðinni segir að minni umferð gefi almennt sterkar vísbendingar um samdrátt í athafnasemi svæðisins.

„Þótt aukinni umferð fylgi margir ókostir er samdráttur almennt talinn verri, þegar heildarmyndin er skoðuð. Með minni umferð dregur væntanlega úr mengun, slit á vegum verður ekki eins mikið og slys verða í flestum tilvikum færri. Samkvæmt rannsóknum sem gerðar hafa verið, hefur komið í ljós að sterk tengsl eru á milli umferðar og hagvaxtar. Minni umferð gefur með öðrum orðum til kynna samdrátt í atvinnulífinu og minni kaupmátt almennings, svo dæmi séu tekin.“

karleskil@vikudagur.is

Nýjast