Mikið tjón, sem ekki hefur verið metið til fjár, varð í húsnæði JMJ við Gránufélagsgötu á Akureyri þegar fjórir ofnar á 2. hæð hússins sprungu í gærkvöld eða nótt og heitt vatn flæddi um öll gólf, auk þess sem mikill gufa var í húsnæðinu. Vatn flæddi einnig niður í verslun JMJ á jarðhæð hússins og olli skemmdum þar en þó ekki á fatnaði. Sigurður Kristján Guðmundsson uppstoppari, er með aðstöðu á 2. hæðinni og hjá honum voru um 50 uppstoppaðir fuglar, hrafnar, svartfugl og gæsir og einnig ísbjörn. Sigurður sagði að ísbirninum hafi verið komið í gjörgæslu til Haraldar Ólafssonar strax í morgun. Haraldur vinnur nú að því að þurrka ísbjörninn, sem hann og Sigurður stoppuðu upp fyrir Náttúrufræðistofnun Íslands. Haraldur vonast til að hægt verði að bjarga ísbirninum en hann beitir m.a. nálustunguaðferð við reyna að halda réttri lögun hans. Sigurður óttast hins vegar að fuglarnir séu mikið skemmdir ef ekki ónýtir. Heitt vatn og gufa sé eitthvað sem ekki fari vel með uppstoppaða gripi. Einnig urðu skemmdir í öðrum herbergjum á 2. hæðinni og m.a. urðu miklar skemmdir á bókum sem voru í kössum á gólfi í einu þeirra. Þarna eru einnig bókhaldsskrifsta, húðflúrstofa og saumastofa og flæddi vatn um alla hæðina. Vatn lak einnig niður í verslun JMJ á jarðhæðinni og segir Ragnar Sverrisson kaupmaður, að fötin hafi sloppið að mestu leyti en að gólfefnið sé ónýtt og einhverjar skemmdir hafa orðið á innréttingum sem standa á gólfinu. Einnig er talið að vatn hafi flætt undir parkettið í versluninni Joes sem einnig er á jarðhæðinni. Ragnar segir að þetta óhapp muni þó ekki hafa áhrif á verslanir hans, sem eru og verða opnar eins og áður. Ragnar segir að heita vatnið hafi verið tekið af húsinu í gær, þar sem verið er að vinna við lagnir í götunni. Það sé hins vegar sín tilfinning að vatninu hafi verið hleypt á að nýju af heldur miklu krafti, þar sem fjórir ofnar sprungu í framhaldinu. Þetta sé eitthvað sem menn verði að læra af.
Slökkviliðsmenn á Akureyri, sem kallaðir voru út á níunda tímanum í morgun, notuðu dælur við að hreinsa upp vatnið og í framhaldinu komu starfsmenn frá ræstingafyrirtæki og hreinsuðu upp það sem eftir var.