„Mig langar aftur, en þó ekki“

Hólmkell Hreinsson
Hólmkell Hreinsson

„Alla þá sem vilja láta hreyfa við sér hvet ég til að fara að sjá Sek í Samkomuhúsinu. Ef orðið hrifinn lýsir því að hrífast af einhverju, hvort heldur sem er í fegurð eða ljótleika var ég mjög hrifinn af þessari sýningu,“ segir Hólmkell Hreinsson í leiklistargagnrýni um verkið Sek, sem frumsýnt var í Samkomuhúsinu á Akureyri í síðustu viku.

„Úr þessum efniviði öllum vinnur  Ingibjörg Huld Haraldsdóttir leikstjóri sýningu sem vekur sterkar tilfinningar, samúð og vorkunn, andúð og andstyggð, óhugnað og hrifningu og allt þar á milli.
Félagi minn lýsti tilfinningunni sem bjó mér í brjósti þegar dyr Samkomuhússins gamla lokuðust að baki mér. „Mig langar aftur, en þó ekki,“ segir Hólmkell jafnframt.

 

Sjá nánar í prentútgáfu Vikudags

Nýjast