Metfjöldi á Handverkshátíð

Aldrei hafa jafn margir sótt Handverkshátíðina í Hrafnagili heim og nú í ár en hátíðinni hófst fyrir helgi og stendur fram á mánudag. Aðsóknarmet hafa verið slegin bæði á föstudaginn þegar 2000 gestir voru og í gær. Landbúnaðarsýningin sem Búnaðarsamband Eyjafjarðar stendur fyrir í tilefni af 80 ára afmæli sambandsins hefur jafnframt dregið til sín fjölda gesta. Mikil veðurblíða á svæðinu hefur kætt bæði gesti og starfsfólk sýninganna. Sýningarhaldarar búast við áframhaldandi metaðsókn í dag, sunnudag, og á mánudaginn enda veðurspáin góð.

 

Nýjast