Metár í umferðinni á Hringveginum

Víkurskarð. Mynd úr safni
Víkurskarð. Mynd úr safni

Árið 2016 var algert metár í umferðinni á Hringveginum en umferðin jókst um ríflega 13 prósent „sem er gríðarlega mikil aukning á einu ári“. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar.

Hlutfallslega jókst umferð meira á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu og mest á Austurlandi eða 30,7 prósent miðað við 2015. Á Norðurlandi hefur umferð aukist töluvert eða um 17,1 prósent yfir árið og 27,9 prósent á milli desembermánaða 2015 og 2016. Til samanburðar jókst umferð um Hringveg á Norðurlandi um 12,9 prósent á milli desembermánaða 2014-2015 og yfir árið á sama tímabili um 7,7 prósent.

Tölfræði vegagerðarinnar

Á landsvísu er aukningin nærri tvöföld á við aukninguna sem næst kemur á milli áranna 2006 og 2007 sem var 6,8 prósent. Aldrei fyrr hafa jafnmargir bílar farið um mælipunkta Vegagerðarinnar á Hringveginum. Sama á við um nýliðinn desembermánuð en umferðin jókst um ríflega 21 prósent í mánuðinum. „Vafalaust eru nokkrar ástæður fyrir því að umferðin á Hringvegi eykst svona eins og hún hefur gert.  Vegagerðin hefur bent á fylgni umferðar við hagvöxt, aukningu ferðamanna og síðan mætti ímynda sér að góð færð á vegum yfir vetrarmánuði hafi mikið að segja,“ segir á vef Vegagerðarinnar. 

Aukin umsvif í sambandi við iðnaðaruppbyggingu á Bakka við Húsavík hefur eflaust sitt að segja einnig varðandi umferðaraukningu á Norðausturlandi. Aukin umferð á þessu svæði hlýtur jafnframt að gefa hugmyndum um að vegtollar muni standa undir kostnaði við gerð Vaðlaheiðarganga byr undir báða vængi, að minnsta kosti ef þessi þróun heldur áfram.

Graf desember 2016

Nýjast