Metár í heimafæðingum

Þegar kemur að fæðingu barns vinna ljósmæður mikilvægt og ötult starf. Málfríður Þórðardóttir er ein þeirra en hún hefur starfað sem ljósmóðir á Sjúkrahúsinu á Akureyri hátt í tíu ár. Vikudagur settist niður með Möllu, eins og hún er jafnan kölluð, og spjallaði við hana um ljósmæðrastarfið, gleðistundirnar, sorgina og fjölgun í heimafæðingum.

„Það er alltaf mjög gefandi og skemmtilegt að taka á móti börnum en um leið getur starfið verið mjög krefjandi. Oftast finnst mér það forréttindi að fá að taka þátt í þessari stærstu stund í lífi fólks og það er einhver vellíðan sem flæðir hjá mér þegar barn fæðist. Það myndast oft einhver tengsl milli foreldranna og ljósmóðurinnar sem rofna seint. Flestum þykir vænt um sína ljósmóður og það er alveg gagnkvæmt í flestum tilvikum. Þetta er svo náin samskipti sem eiga sér stað.

Heimafæðingum hefur farið fjölgandi síðustu árin og nú er metár í heimafæðingum á Norðurlandi. Fjórtán konur hafa fætt heima það sem af er ári og það er meira en fjörutíu ár síðan fæddust svona mörg börn í heimahúsi á þessum landshluta. Þetta er engin tískubóla, heldur hægfara þróun síðustu sex árin. Fólk er meðvitaðra og betur upplýst um valmöguleika sína,“ segir Málfríður.

throstur@vikudagur.is

Ítarlegra viðtal við Málfríði má finna í prentútgáfu Vikudags.

Nýjast