Metaðsókn í haust

Háskólinn á Akureyri.
Háskólinn á Akureyri.

Aðsókn í Háskólann á Akureyri hefur aldrei verið eins mikil og nú en þegar umsóknarfresturinn rann út í byrjun júní voru 1100 umsóknir komnar og er það met. „Á sama tíma í fyrra voru þær rétt yfir 900. Þannig að við sjáum aukningu á milli ára,“ segir Dagmar Ýr Stefánsdóttir, forstöðumaður markaðs-og kynningarsviðs hjá HA. Langflestar umsóknir bárust í hjúkrunarfræði og sálfræði. Sökum fjölmargra fyrirspurna var ákveðið að framlengja umsóknarfrest í þeim námsgreinum þar sem mögulegt var að taka við fleiri umsóknum.

Nýjast