Menntað fólk skilar árangri

Háskólasvæðið á Sólborg. Mynd: Hörður Geirsson.
Háskólasvæðið á Sólborg. Mynd: Hörður Geirsson.

„Það er búið að vera stöðug aukning,” segir Hreiðar Þór Valtýsson, lektor í auðlindadeild við Háskólann á Akureyri. Í haust hófu 33 nemendur nám í sjávarútvegi við skólann og er það mesti fjöldinn í átján ár og sá næstmesti frá upphafi. Farið er að kenna nám í sjávarútvegi á framhaldsskólastigi en Menntaskólinn á Tröllaskaga mun bjóða upp á þá nýjung í vetur, í góðu samstarfi við HA.

„Við bindum miklar vonir við það og ég tel afar mikilvægt að fá nám af þessu tagi á helstu skólastig landsins. Við viljum meina að okkar nám á háskólastigi hafi skipt sköpum fyrir sjávarútveginn, að það sé hæft fólk sem starfar í greininni og þekki hlutina út og inn. Það skilar sér í framsæknum sjávarútvegi á heimsvísu,” segir Hreiðar.

throstur@vikudagur.is

Nýjast