Menningar- og hrútadagar á Raufarhöfn

Boðið verður uppá fjölbreytta og skemmtilega dagskrá á menningar- og hrútadögum á Raufarhöfn sem fara fram næstu daga.

Boðið verður uppá pókerkvöld, gönguferð, bíósýningu, hagyrðingakvöld og margt fleira.

Einn af hápunktum hátíðarinnar er Hrútadagurinn 2. október í Faxahöllinni á Raufarhöfn. Þar setur Níels Árni dagskrá kl 14:00.
Síðan verður bókakynning og stígvélakast og barnadagskrá. Sala og uppboð á hrútum sem Níels Árni Lund stjórnar.
Um kvöldið verða tónleikar með Hvanndalsbræðrum í félagsheimilinu Hnitbjörgum.


Athugasemdir

Nýjast