Maríuerla er Fugl ársins 2022

Maríuerla er fugl ársins. Mynd/ Ingi Steinar Gunnlaugsson
Maríuerla er fugl ársins. Mynd/ Ingi Steinar Gunnlaugsson

Þetta árið kepptu sjö fuglategundir um titilinn Fugl ársins í keppni sem Fuglavernd stóð nú fyrir annað árið í röð. Fimm fuglanna höfðu kosningastjóra sem unnu ötult og óeigingjarnt kynningarstarf fyrir sína smávini. Maríuerlan kynnti sig þó sjálf með hlýlegri nærveru sinni um allt land og þurfti ekki talsmann til að sigra keppnina með yfirburðum og 21% atkvæða. Í öðru og þriðja sæti lentu hinir ólíku en glæsilegu fuglar, himbrimi og auðnutittlingur, með 14% atkvæða hvor um sig. Alls kusu 2100 mannns um fugl ársins 2022.

Um maríuerluna

Maríuerla dvelur í Afríku á veturna en algengt er að finna hana hér á landi í kring um mannabústaði, frá vori og fram á haust. Hún er nokkuð gæf og virðist trygg sínum heimahögum. Hún lifir á smádýrum sem hún veiðir á flugi eða á hlaupum, er iðin, sítifandi og flögrandi í leit sinni að æti. Maríuerlan hefur sigrað hjörtu íslendinga fyrir löngu ef marka má ljóðabrot Guðfinnu Jónsdóttur frá Hömrum (1899-1946).

Máríuerla

Sendir drottins móðir, Maríá,

mildar gjafir himni sínum frá.

Flaug úr hennar hendi vorsins perla,

heilög dúfa, lítil maríuerla.

 

Létt á flugi, kvik og fjaðurfín

flýgur hún um auðan geim til þín.

Í veggnum þínum vill hún hreiður búa,

varnarlaus á þína miskunn trúa.

 

Dável svarta húfan henni fer,

hneigir kolli ákaft fyrir þér.

Strá úr veðurbörðu, bleiku sefi

ber hún eins og friðargrein í nefi.

 

Sérhvert vor um varpa og bæjarhól

vappar söngvin erla á gráum kjól,

flögrar eins og bæn um geiminn bláa,

bæn fyrir hinum varnarlausa smáa.

Um keppnina Fugl ársins

Markmiðið með keppninni er að draga fram og kynna nokkrar fuglategundir sem finnast hér á landi, fjalla um stofnstærðir, búsvæði, fæðuval og verndarstöðu. Með þessu vill Fuglavernd leggja sitt af mörkum til að efla fræðslu, samtal og umfjöllun um stöðu fuglastofna og um mikilvægi fugla í lífríkin


Athugasemdir

Nýjast