María farin að skíða á ný

María Guðmundsdóttir landsliðskona frá Akureyri er farin að skíða á ný eftir meiðsli. María varð fyrir því óláni að slíta krossband í hné er hún keppti á Skíðalandsmóti Íslands á Akureyri sl. vetur en aðstæður til skíðaiðkunnar voru þá afar erfiðar og var keppni hætt eftir að María meiddist. Sex mánuðir eru síðan María fór í aðgerð í Noregi vegna meiðslana en hún verður í ströngu prógrammi næstu vikurnar til að ná fyrri styrk.

 

 

Nýjast