Jónsmessan er á morgun 24. júní og jónsmessunótt því framundan. Í kvöld og í nótt ætti fólk því að geta velt sér upp úr dögginni en í kvöld verður líka ýmislegt fleira á boðstólnum á Akureyri sem vakið getur líkama og sál.
Í Kjarnaskógi hefst dagskrá kl. 20.00 með opnun sýningarinnar Andar í skóginum en að sýningunni stendur hópur nemenda úr VMA í samstarfi við George Hollanders og Skógræktarfélag Eyfirðinga. Sýningin, sem styrkt er af Menningarráði Eyþings, stendur í allt sumar.
Boðið verður upp á skógargöngu sem hefst kl. 20.30 þar sem leitað verður að anda skógarins og boðið upp á rjúkandi ketilkaffi að skógarmanna sið að lokinni göngu. Sett verður upp taflmót sem einnig hefst kl. 20.30. Allir viðburðirnir verða á efra svæðinu í nágrenni sólúrsins.
Frá Torfunefsbryggju við miðbæ Akureyrar verður boðið upp á siglingu með eikarbátnum Húna II undir yfirskriftinni Jónsmessudraumur á Eyjafirði. Hefst siglingin kl. 23.00 og er áætlaður komutími til baka um kl. 02.30.
Þá býður Ferðafélag Akureyrar upp á Jónsmessugöngu á Uppsalahnjúk og hefst ferðin frá skrifstofu félagsins kl. 21.00