Margir vilja vinna á nýju hjúkrunarheimili

Tölvulíkan af útliti hjúkrunarheimilisins við Vestursíðu. Er þú með með tillögu að nafni? Frestur í …
Tölvulíkan af útliti hjúkrunarheimilisins við Vestursíðu. Er þú með með tillögu að nafni? Frestur í samkeppni rennur út á morgun

Bygging nýja hjúkrunarheimilisins við Vestursíðu hefur gengið vel og er vonast til að byggingin verði afhent á tilsettum tíma í haust. Brit J. Bieltvedt framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrar gerði grein fyrir stöðu mála varðandi nýbygginguna á fundi félagsmálaráðs í fyrradag og kom þar fram að reglur um búnaðarkaup bárust í lok maí og er nú verið að vinna að búnaðarkaupum. Mikill áhugi er á störfum í Vestursíðu og bárust á annað hundrað umsóknir. Ráðnir verða um 20 nýir starfsmenn í mismunandi starfshlutföll og er ráðningum að mestu lokið.

Auglýst hefur verið eftir hugmyndum að nöfnum á heimilin í Vestursíðu og þurfa hugmyndir að berast fyrir morgundaginn, 30. júní!

Hjúkrunarheimilið verður rekið samkvæmt Eden Alternative hugmyndafræðinni sem hefur verið að ryðja sér til rúms víða um heim. Hugmyndafræðin leggur áherslu á að öldrunarheimili séu heimili þeirra sem þar búa. Áhersla er á sjálfræði íbúanna, virðingu, einstaklingsmiðaða þjónustu og að fólki finnist lífið hafa tilgang þrátt fyrir heilsuleysi. Byggðir verða fimm íbúðakjarnar og verða níu íbúðir í hverjum kjarna, ásamt borðsal, eldhúsi, setustofu, vinnurými, þvottahúsi og geymslum. Kjarnarnir eru tengdir saman með göngum og er stór samkomusalur inn á milli kjarnanna, þar er að auki iðjuþjálfun, sjúkraþjálfun og skrifstofa deildarstjóra.

Nýjast