Marflugur á ferð við Akureyri

Marfluga
Marfluga

Nýlega hefur orðið vart við talsvert af torkennilegum svifdýrum við smábátahöfnina á Akureyri og voru svifdýr þessi send til greiningar til Háskólans á Akureyri. Hér reyndist á ferðinni mikil mergð svokallaðra marflugna (Clione limacina). Þetta eru þó ekki flugur, þar sem flugur finnast ekki í sjó heldur sérkennileg sniglategund af hópi vængsnigla. Stundum var þetta nefnt brúnáta þegar mikið var um vængsnigla í síldarmögum hér fyrr á tíðum. Sniglar þessir geta orðið allt að 8 cm að stærð og geta verið í mikilli mergð á köldum hafsvæðum bæði hér á norðlægum breiddargráðum en einnig kringum Suðurskautslandið. Hér er því sannur heimsborgari á ferð. Marflugur eru ekki með skel og lifa í vatnsmassanum, ólíkt flestir frændur þeirra sem sniglast um á botninum. Þær eru mjög sérhæfðar að því leyti að þær éta einungis aðrar tegundir vængsnigla sem eru þó miklu minni. Þær þurfa þó ekki að örvænta ef þær finna ekki fæðu því þær geta svelt sig í allt að ár ef ekkert er í boði. Marflugurnar eru með nokkurs konar vængi sem þær nota til að synda um í sjónum og kallast þær á ensku „sea angel“ eða „sea butterfly“ sem er afar viðeigandi eins og sést á myndinni.

Nýjast