Í undirbúningi er samstarfsverkefni milli Menntaskólans á Akureyri og Menntaskólans í Nuuk á Grænlandi, Qeqqani Ilinniarnertuunngorniarfik. Stefnt er að því að fara með einn 3. bekk skólans í ferð til Grænlands á vorönninni og fá síðan bekk frá Grænlandi í heimsókn árið eftir. Verkefnið er í grunninn raunvísindalegt og byggir á samanburði á löndunum tveimur en er þó um leið þverfaglegt með sterkar hug- og félagsvísindalegar tengingar. Hugmyndin er að verkefnið stuðli að auknum áhuga framhaldsskólanemenda, bæði hér á Akureyri og í Nuuk, á nágrannalöndum sínum og nágrönnum.
Dagana 20. - 25. september fóru tveir kennarar úr Menntaskólanum á Akureyri, Andri Gylfason og Þórhildur Björnsdóttir, til Nuuk til að leggja grunninn að þessu samstarfsverkefni. Þar tóku þau þátt í ráðstefnu sem haldin var við Háskólann í Nuuk (Ilisimatusarfik) sem bar heitið Icelandic Greenlandic Arctic Science Days.
Fimmtudaginn 11. október koma hingað í heimsókn þær Aviaq Jørgensen og Maliina Grønvold Olsen, kennari og nemandi frá Menntaskólanum í Nuuk og dveljast fram að helgi. Gestirnir munu hitta nemendur og kennara Menntaskólans á Akureyri á meðan á dvölinni stendur og taka þátt í upphafi verkefnsins sem verður í kennslustund utan stundarskrár á fimmtudaginn kemur. Maliina og Aviaq heimsækja einnig aðrar stofnanir á Akureyri og þá sérstaklega Háskólann en kennarar hans verða í lykilhlutverki í undirbúningi nemenda MA fyrir ferðina til Grænlands.
Grænland liggur steinsnar frá Íslandi en samt vita fáir mikið um landið. Landið er tæp 2,2 milljón ferkílómetra eða um 21 sinnum stærra en Ísland en hins vegar búa aðeins um 56 þúsund manns á Grænlandi þar sem meiri hluti landsins liggur undir jökli. Nuuk er höfuðborgin með um 17 þúsund íbúa sem svipar til fólksfjöldans á Akureyri. Þann 21. júní 2009 hlaut Grænland sjálfstjórn en þrjátíu ár þar á undan hafði landið búið við heimastjórn svipaða og í Færeyjum. Miklar framfarir hafa orðið á Grænlandi á liðnum árum og má nú heita að Grænlendingar ráði nú sínum málum að mestu sjálfir., segir í tilkynningu