Lystigarðurinn fær gjöf

Helgi Þórsson, Björgvin Steindórsson forstöðumaður Lystigarðsins og Kristín Þóra Kjartansdóttir form…
Helgi Þórsson, Björgvin Steindórsson forstöðumaður Lystigarðsins og Kristín Þóra Kjartansdóttir formaður GA.

Í tilefni af 100 ára afmælis Lystigarðsins á Akureyri á þessu ári ákváðu félagar í Garðyrkjufélagi Akureyrar að færa garðinum veglega gjöf fyrir hönd Garðyrkjufélags Íslands. Listamaðurinn Helgi Þórsson í Kristnesi var fenginn til að smíða bekk sem afhentur var aðstandendum og unnendum Lystigarðsins við hátíðlega afmæliathöfn garðsins þann 29. júlí síðastliðinn. Bekkurinn forláti var þá borinn á sinn stað við norðurhlið hringstígsins um gamla gosbrunninn og fer hann afar vel þar enda sérhannaður inn í umhverfið, segir í fréttatilkynningu.

Viðurinn í bekkinn var fenginn úr Vaðlareit og er um að ræða lerki og útbjó Beate Stormo skínandi og áletraðan skjöld. Bekkurinn er þannig úr garði gerður að heilu fjölskyldurnar eða vinahóparnir komast fyrir á honum og eins er hægt að leggja sig í sólinni og hlusta á þyt í laufi. Unnendur Lystigarðsins eru hvattir til þess að líta gripinn augum og njóta hans sem skyldi, en gott er að hvíla þarna lúin bein á rölti um Lystigarðinn á Akureyri.

Nýjast