Lyftistöng fyrir Þór/KA

Arna Sif og Katrín á æfingu með Potsdam.
Arna Sif og Katrín á æfingu með Potsdam.

„Þetta var heilmikil reynsla og kemur okkur sem þjálfurum til góða í starfi. Um leið er þetta mikil lyftistöng fyrir Þór/KA og afreksstefnu félagsins sem miðar að því að auka gæði og metnað á hverju ári og vera með lið í fremstu röð,“ segir Jóhann Kristinn Gunnarsson þjálfari kvennaliðs Þórs/KA í knattspyrnu.

Jóhann hélt út til Þýskalands í lok nóvember ásamt Siguróla Kristjánssyni aðstoðarþjálfara og kynnti sér þjálfun og aðstæður hjá þýska stórliðinu Turbine Potsdam. Leikmennirnir Katrín Ásbjörnsdóttir og Arna Sif Ásgrímsdóttir voru einnig með í för og æfðu með aðalliði félagsins. „Það kom okkur á óvart hversu mikil ákefð og æfingaálagið er þarna úti. Einnig hve vel er staðið að öllu hjá félaginu en bæði reksturinn og aðstaðan er eins og hjá stórum félögum í karlaboltanum.“

Frekari samstarf

Jóhann segir að samstarf Þórs/KA og Potsdam muni eflast ennfrekar. Stefnan sé að það verði árlegur viðburður að þjálfarar og valdir leikmenn fari til Potsdam í vikutíma. „Möguleikinn á að geta boðið metnaðarfullum leikmönnum til æfinga með þessu sterka liði á hverju ári er bara enn ein vottunin á gæðum starfsins hjá Þór/KA,“ segir Jóhann.

Nýjast