Lyfjaverksmiðjan á Grenivík stækkuð

Húsnæði PharmArctica á Grenivík
Húsnæði PharmArctica á Grenivík

Hafist verður handa við að reisa um 350 fermetra viðbyggingu við lyfjafyrirtækið PharmArctica á Grenivík í vor. Fyrirtækið hefur verið starfandi þar í áratug og er í um 200 fermetra húsnæði sem orðið er alltof lítið, skortur á rými er farinn að hamla starfseminni enda hefur umfangið aukist með árunum.

Sigurbjörn Jakobsson framkvæmdastjóri segir að rekstur fyrirtækisins hafi gengið vel að undanförnu.

Það var formlega stofnað árið 2002 en tók til starfa á árinu 2003. Hann segir að félagið hafi verið rekið með tapi öll árin nema hvað viðsnúningur varð í rekstri á liðnu ár og skilaði það þá hagnaði í fyrsta sinn í sögunni.

 „Við höfum bæði hagrætt í okkar rekstri og eins hafa verkefni aukist,“ segir Sigurbjörn.

Hjá fyrirtækinu starfa alls 9 starfsmenn, þar af er einn lyfjafræðingur, einn líffræðingur og einn líftæknir, en starfsemi þess er mikil lyftistöng fyrir byggðalagið og gerir atvinnulífið fjölbreyttara að sögn Sigurbjörns.

PharmArctica framleiðir lyf, snyrtivörur og fæðubótarefni svo eitthvað sé nefnt en hefur einnig í verktakavinnu tekið að sér að framleiða, fylla á og pakka vörur fyrir önnur fyrirtæki.

Nýjast