Lottóvinningshafinn sem vann 73 milljónir þann 9. júní sl. er fundinn. Vinningshafinn gaf sig fram í dag en miðinn var keyptur í Leirunesti á Akureyri. Í stuttri fréttatilkynningu frá Íslenskri getspá kemur fram að nánari upplýsingar verði veittar um málið þegar búið er að greiða út vinninginn.