Einstaklingurinn sem vann 73 milljónir í lottó fyrir um tveimur vikum síðan hefur enn ekki gefið sig fram. Miðinn var keyptur með reiðufé í Leirunesti á Akureyri og er þetta óvenjulega langur tími, samkvæmt Íslenskri getspá. Milljónirnar liggja því enn óhreyfðar en lottóhafinn þarf hins vegar ekki að örvænta strax því lottóvinningar fyrnast á einu ári. Eftir þann tíma rennur vinningurinn til ýmissa góðgerðarmála.