Fundur yfirlögregluþjóna á Norðurlandi sem haldinn á Akureyri í gær fagnar því að Alþingi hafi ákveðið að efla löggæsluna í landinu með 200 miljón króna aukaframlagi. Mikilvægt sé að þessum fjármunum verði varið til þess að efla grunnþjónustu lögreglunnar um allt land þar sem að þjónusta og störf lögreglunnar séu oft neðan við ásættanleg öryggismörk bæði fyrir borgarana og lögreglumennina sjálfa. Því til staðfestu er það orðið allt of algengt að lögreglumenn séu jafnvel einir við störf við mjög áhættusamar aðstæður.